Þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave frumvarpið verður haldin laugardaginn 9. apríl næstkomandi, samkvæmt tillögu sem Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra lagði fram á ríkisstjórnarfundi í morgun.

Eins og kunnugt er vísaði Ólafur Ragnar Grímsson forseti málinu í þjóðaratkvæði þegar hann synjaði lögunum staðfestingar sl. sunnudag.