Gengisvísitalan er nú 153,6 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,6% frá opnun í morgun 1,1% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Krónan heldur því áfram að veikjast en hún veiktist snögglega seinni part gærdagsins eftir að hafa styrkst um 0,2% í gærmorgun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 153,2 stig en var í gær 151,9 stig.

Krónan hefur þó styrkst um 1,3% síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. föstudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 76,1 krónu, Evran í 120,2 krónum og Sterlingspundið í 150,5 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,1 krónu, japanskt jen í 0,71 krónu og danska krónan í 16,1 krónu.