Gengisvísitalan er nú 151,7 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,2% frá opnun í morgun en 0,4% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 151,9 stig en var í gær 152,3 stig.

Krónan hefur nú styrkst um 3,3% síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. fimmtudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 75,5 krónum, Evran í 118,5 krónum og Sterlingspundið í 149 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 73 krónum, japanskt jen í 0,70 krónum og danska krónan í 15,9 krónum.