Gengisvísitalan var 168,1 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 3% frá opnun í morgun en um 4,1% frá opinberu gengi Seðlabankans á föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Lokagildi dagsins í dag miðast þó við markaðsgildi.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 164,3 stig sem er hæsta opinbera gengi á þessari öld en fyrra met er þó aðeins síðan á fimmtudag síðastliðinn þegar opinbera gengisvísitalan var 163,8 stig.

Sé miðað við markaðsgengi nú og opinbert gengi í byrjun árs hefur krónan veikst um 27,8%.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Evran við lok markaða í 130,5 krónum, Bandaríkjadalur í 84,2 krónum og Sterlingspundið í 165 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 80,4 krónum og japanskt jen í 0,78 krónum