Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar í dag um afléttingu sóttvarna og aðgerðir á landamærunum. Fundurinn fer fram í Safnahúsinu og hefst klukkan 11 eða strax að loknum ríkisstjórnarfundi.

Heilbrigðisráðuneytið tilkynnti síðast um rýmkun sóttvarnarreglna þann 11. júní síðastliðin þegar fjöldatakmörk voru færð upp úr 150 manna í 300 og nándarregla varð einn metri í stað tveggja.