Lánasjóður sveitarfélaga hefur samið við Saga Capital Fjárfestingarbanka um að bankinn annist viðskiptavakt með skuldabréfaflokk lánasjóðsins LSS 150224 fyrir eigin reikning Saga Capital.

Tilgangur samningsins er að styrkja aðgang Lánasjóðs sveitarfélaga að lánsfé og koma á virkri verðmyndun á eftirmarkaði með bréf sjóðsins.

Þetta kemur fram í tilkynniningu frá Saga Capital. „Í samningnum felst að Saga Capital setur daglega fram kaup- og sölutilboð í skuldabréfaflokk lánasjóðsins LSS 150224 en aukin viðskipti eru til þess fallin að auka seljanleika bréfanna og draga þannig úr áhættu og viðskiptakostnaði fjárfesta, ásamt því að auka gagnsæi í verðmyndun bréfanna," segir í tilkynningunni. Saga Capital hóf viðskiptavaktina 22. desember 2008.