Í vikunni skilaði Landsbankinn umsögn um kvótafrumvarpið, sem nú liggur fyrir þinginu, en það er ekki í fyrsta skipti sem áhyggjur vakna um streymi erlends gjaldeyris inn og út úr bankanum.

Fyrir rúmu ári, áður en stóra kvótafrumvarpið var lagt fram í fyrra, sendi gamli Landsbankinn þeim nýja bréf, þar sem lýst var yfir áhyggjum af því að misræmi í inn- og útgreiðslum á erlendri mynt gæti þýtt að nýi bankinn gæti ekki greitt erlenda skuldabréfið upp að fullu í gjaldeyri.

Þetta undirstrikar það hversu viðkvæmur nýi bankinn er fyrir breytingum á innstreymi gjaldeyris og þar með lagabreytingum sem hafa áhrif á útgerðarfyrirtæki. Eins og áður segir er ekki vitað hver áhrifin á bankann verða, en í umsögn Ragnars Árnasonar hagfræðiprófessors segir að veiðigjaldið muni veikja íslenskan sjávarútveg stórlega og að íslensk fyrirtæki geti hrakist út af bestu mörkuðunum erlendis.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast pdf útgáfu af blaðinu undir liðnum Tölublöð hér að ofan.