Landsvirkjun skrifaði í dag undir sambankalán í íslenskum krónum til sjö ára að fjárhæð 12 milljarðar króna, jafnvirði um 93 milljóna dala. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Lánið er veltilán og getur fyrirtækið dregið á lánið og endurgreitt eftir þörfum. Með lántökunni endurfjármagnar Landsvirkjun eldra sambankalán frá árinu 2011.

Íslandsbanki, ásamt Arion banka og Landsbankanum veita lánið sem samanstendur af jöfnum hlut frá bönkunum þremur, 4 milljarðar króna hver hlutur. Íslandsbanki sá um skjalagerð og umsýslu við lánveitinguna fyrir hönd Landsvirkjunar.

Fram kemur í tilkynningunni að markmið lántökunnar sé að Landsvirkjun hafi ávallt tryggan og greiðan aðgang að fjármögnun í íslenskum krónum.