Alcoa og Landsvirkjun munu á næstunni taka upp formlegar viðræður um orkukaup vegna álvers á Bakka. Stefnt er að því að viðræðunum ljúki fyrir árslok 2009.

Þetta er meðal þess sem kveðið er á um í endurnýjaðri viljayfirlýsingu fyrirtækjanna sem Bernt Reitan, aðstoðarforstjóri Alcoa og Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, undirrituðu í fyrri viku.   Landsvirkjun og Þeistareykir ehf. munu fram til ársloka 2009 bora samtals tíu tilraunaborholur á háhitasvæðunum í Þingeyjarsýslu til að kanna orkugetu svæðanna.

Alcoa mun taka þátt í kostnaði við tilraunaboranirnar, samkvæmt nánara samkomulagi. Þær áætlanir sem unnið er eftir gera ráð fyrir að álverið noti 400 MW af raforku. Komi í ljós að meiri raforka verði til reiðu munu aðilar ræða möguleika á að hún verði nýtt fyrir álver á Bakka.