Það kom flatt upp á viðmælendur Björns Braga í hálfleik í EM stofunni þegar hann líkti íslenska landsliðinu við þýska nasista árið 1938 því þeir (íslenska landsliðið) væri bókstaflega að slátra Austurríkismönnum.

Nú þegar er fólk farið að láta í ljós skoðanir sínar á Facebook og þykja mörgum ummælin ósmekkleg, enda fæstir sáttir við að vera líkt við þýska nasista, hvernig sem það er meint.

Þegar þetta er ritað er staðan 26-18 fyrir Íslandi.