Lítil hreyfing varð á Wall Street í dag en óvissa um framvindu 700 milljarða dala björgunaraðgerða vestanhafs vóg upp 5 milljarða kaup Warren Buffett í Goldman Sachs, samkvæmt frétt Reuters.

Nasdaq vísitalan hækkaði um 0,1% í dag. Dow Jones lækkaði hins vegar um 0,2% og Standard & Poor´s lækkaði um 0,2%.

Olíuverð lækkaði um 1,4% í dag og kostar olíutunnan nú 105,2 Bandaríkjadali.