Fyrirtækið Lífland hefur ákveðið að lækka verð á kjarnfóðri um 3-4%.Verð hráefna til fóðurgerðar hefur á erlendum mörkuðum lækkað nokkuð upp á síðkastið segir í frétt á heimasíðu félagsins.

Þar er bent á að á sama tíma hefur gengisþróun íslensku krónunnar verið óhagstæð,  en að öllu samanteknuþá hefur núna myndast svigrúm til þessarar lækkunar kjarnfóðurs. Verð kjarnfóðurs verður næst endurskoðað í febrúar og mun fyrst og fremst  ráðast af gengisþróun íslensku krónunnar hvert framhaldið verður. Lækkunin hefur tekið gildi.