Allar helstu hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum hækkuðu í kvöld, öfugt við það sem gerðist á mörkðum í Evrópu, en þó var hækkunin ekki mikil. Dow Jones hækkaði um 0,14%, S&P 500 um 0,5% og Nasdaq um liðlega 1%. Í upphafi dags var ekki mikil bjartsýni vestra en tölur um 0,5% aukningu í smásöluverslun í október og að birgðir iðnaðarfyrirtækja hefðu staðið í stað milli mánaða höfðu jákvæð áhrif á markaðina.