Markaðsdagur Eimskips verður haldin í dag , föstudaginn 1. febrúar, á Hilton Nordica. Í tilkynningu segir að Eimskip muni þar kynna fyrir viðskiptavinum og hluthöfum félagsins þjónustu fyrirtækisins þess og starfsemi. Starfsemi Eimskips og leiðakerfi félagsins á Norður-Atlantshafi verður í forgrunni á markaðsdeginum en einnig býðst gestum að skoða og fræðast um flutningatengdar lausnir sem í boði eru hjá Eimskip.

Á laugardag verður síðan sérstakur vinnudagur Eimskips sem ber heitið Frá hugmynd til framtíðar. Þar munu starfsmenn og stjórnendur koma saman og fara yfir ýmislegt sem viðkemur starfsemi félagsins. Þessir þemadagar eru nú haldnir þriðja árið í röð.