Innheimtustofnun sveitarfélaga mun leiðrétta ofteknar innheimtuþóknanir vegna vangoldinna meðlagskrafna sem stofnunin innheimti á tímabilinu nóvember 2018 þar til í desember 2021. Alls er fjöldi leiðréttinga 906 og nemur heildarupphæð endurgreiðslna um 70 milljónum króna, en 7 milljónir af því eru vextir og dráttarvextir.

Þegar ný stjórn tók við stofnuninni í desember 2021 blasti við að verulegur vafi lék á um lögmæti innheimtuþóknana. Nýja stjórnin samþykkti í júní 2022 að leita eftir lögfræðiáliti frá Lagastofnun Háskóla Íslands til að fá úr því skorið hvort lagaheimild hefði verið fyrir því að leggja sérstaka þóknun á innheimtu stofnunarinnar sem beindist að launagreiðendum. Í ljós kom að slík lagaheimild var ekki til staðar og mun Innheimtustofnun leiðrétta innheimtuþóknun hjá þeim sem höfðu greitt hana.

„Að mati nýrrar stjórnar lék verulegur vafi á um lögmæti þess að rukka innheimtuþóknanir og þær hafa ekki verið innheimtar hjá stofnuninni eftir að núverandi stjórn tók við. Við fengum mjög afgerandi lögfræðiálit um að engin lagaheimild væri fyrir hendi og við ætlum að leiðrétta fljótt og vel. Viðskiptavinir stofnunarinnar þurfa ekki að aðhafast neitt, við munum senda bréf á alla einstaklinga sem munu fá leiðréttingu og þar kemur fram hvernig við ætlum að vinna málið,“ segir Aldís Hilmarsdóttir, formaður stjórnar Innheimtustofnunar sveitarfélaga.

Allir þeir sem eiga rétt á leiðréttingu fá á næstu dögum sent bréf með upplýsingum um næstu skref. Í framhaldinu koma þrír möguleikar til greina; skuldajöfnuður að fullu, skuldajöfnuður að hluta og að lokum endurgreiðsla á innheimtugjöldum. Tilvikum dánar- og þrotabúa verður einnig hagað með sama hætti.