Metro-Goldwyn-Mayer Studios Inc (MGM) óskaði eftir vörn við gjaldþroti fyrir dómstólum á Manhattan í New York í dag (Chapter 11).

Milljarðamæringurinn Carl Icahn hefur gert samkomulag við MGM og lánadrottna þess að styðja við félagið.  Er því afar sennilegt að tekist hafi að bjarga þessu fornfræga kvikmyndaveri frá gjaldþroti. Samkomulagið felur í sér að Icahn mun geta haft bein áhrif á stjórn félagsins.