Macland opnar verslun sína að Laugavegi 23 kl. 23:59 í kvöld vegna sölu á Iphone 6 og Iphone 6 plus sem hefst á morgun eða föstudaginn, 31. október.

Tekið verður á móti gestum í verslun Macland með lifandi tónlist og veitingum. „Við hjá Macland gerum okkur grein fyrir því að það eru margir búnir að bíða lengi eftir Iphone 6 og það er kominn viss spenningur í fólk. Við viljum því taka smá forskot á sæluna og bjóða viðskiptavinum Macland að koma í búðina okkar um leið og 31. október gengur í garð. Við lofum miklu fjöri, tónlist og almennu Iphone-stuði,” segir Hörður Ágústsson, eigandi Macland.

Sýningareintök eru þegar komin upp í versluninni en salan hefst eins og fyrr segir á slaginu tólf í kvöld.