Eins og VB.is greindi frá fullyrðir Vísir að MP banki hafi verið nefndur í fjárkúgunarbréfinu sem barst á heimili Sigmundar Davíðs og að hótun systranna hafi verið að  Sigmundur hefði beitt sér fyrir láni frá MP banka. MP banki hefur nú sent frá sér yfirlýsingu þar sem kemur fram að MP banki getur ekki tjáð sig efnislega um hvort nafngreindir einstaklingar eða fyrirtæki eru, eða eru ekki, í viðskiptum við bankann. Auk þess er nefnt að rétt sé að fjölskyldutengsl séu á milli forstjóra bankans og forsætisráðherra. Þau tengsl hafi legið fyrir lengi og hafa engin áhrif haft á rekstur bankans.

Hér fyrir neðan má lesa yfirlýsingu MP banka í heild sinni:

MP banki vill koma eftirfarandi á framfæri í tengslum við rannsókn lögreglu höfuðborgarsvæðisins á tilraun til þess að beita forsætisráðherra Íslands og fjölskyldu hans fjárkúgun:

„Fjölmiðlar hafa fjallað um tengsl MP banka við rannsókn lögreglu á tilraun til að kúga fé út úr forsætisráðherra. Fullyrt hefur verið í fréttum að í bréfi sem sent var á heimili forsætisráðherra komi fram að ráðherrann hafi beitt sér fyrir láni frá MP banka til tilgreindra fyrirtækja. Bréfið sem um ræðir er sönnunargagn í lögreglurannsókn og hefur ekki verið gert opinbert. Forsvarsmenn MP banka hafa ekki séð bréfið og þekkja ekki þær ásakanir sem þar eru settar fram.

MP banki getur ekki tjáð sig efnislega um hvort nafngreindir einstaklingar eða fyrirtæki eru, eða eru ekki, í viðskiptum við bankann. Bankinn getur ekki rofið trúnað um viðskiptavini eða einstök viðskipti. Við getum þó fullyrt að vinnulag bankans er í öllum tilvikum í fullu samræmi við þau lög sem gilda um starfsemi fjármálafyrirtækja.

Í fréttum hefur jafnframt verið fjallað um tengsl forsætisráðherra við MP banka. Rétt er að fjölskyldutengsl eru á milli forstjóra bankans og forsætisráðherra. Þau tengsl hafa legið fyrir lengi og hafa engin áhrif haft á rekstur bankans. MP banki er starfræktur með faglegum hætti þar sem hagur viðskiptavina og hluthafa bankans er hafður að leiðarljósi.

Einnig hefur verið fjallað um þá staðreynd að starfsmenn bankans hafa fengið leyfi frá störfum til að vinna með stjórnvöldum að vandasömum úrlausnarefnum sem varða þjóðarhag, þar með talið afléttingu gjaldeyrishafta. Hjá MP banka vinna margir hæfir sérfræðingar. Stjórnvöld hafa leitað eftir því að fá að njóta starfskrafta þriggja starfsmanna bankans vegna tímabundinna verkefna. Einn þeirra hætti hjá bankanum til að geta sinnt slíku verkefni og tveimur þeirra hefur bankinn veitt leyfi frá störfum til að sinna þessum verkefnum. MP banki hefur ekki hagsmuni af því en lítur á það sem samfélagslega skyldu bankans að starfsfólkið fái leyfi frá störfum til að sinna þessum þjóðhagslega mikilvægu verkefnum.“