Samtök atvinnulífsins segja að jákvæðar breytingar hafi verið boðaðar á skattkerfinu með nýju fjárlagafrumvarpi þar sem áætlað sé að afnema tolla og lækka skatta á einstaklinga. Telja þau að mikilvægt sé að framhald verði á slíkum aðgerðum og það svigrúm sem myndist við stækkun tekjustofna sé nýtt til að einfalda skattkerfið og draga til baka þá aukningu sem orðið hefur á skattbyrði einstaklinga og fyrirtækja. Þetta kemur fram í nýrri greiningu efnahagssviðs samtakanna.

Þar segir aftur á móti að slíka breytingar séu þensluhvetjandi og því sé nauðsynlegt að draga úr útgjöldum á móti. Fram kemur í greiningunni að útgjöld ríkissjóðs, að frátöldum fjármagnskostnaði og öðrum útgjöldum sem óhjákvæmilegt er að falli á ríkissjóð, hafi aukist frá árinu 2012 og hafi nær aldrei verið hærra hlutfall af landsframleiðslu. Boðuðum skattalækkunum og niðurfellingu tolla sé því ekki mætt með minni útgjöldum. Þensluáhrif frumvarpsins fyrir árið 2016 séu metin um 40 milljarðar króna.

„Uppsveiflur eru aldrei eilífar og nú þegar tekjur ríkissjóðs vaxa eins og raun ber vitni er nauðsynlegt að búa í haginn. Fjármálastefnu ríkissjóðs verður að haga þannig á komandi árum að næst þegar illa árar verði útgjöldin ekki í hæstu hæðum, skattprósentur við þolmörk og skuldastaðan sligandi. Nú er tími aðgerða,“ segir í greiningunni.

Hægt er að lesa nánar um málið hér .