Sigurbjörn Einarsson
Sigurbjörn Einarsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Sigurbjörn Einarsson hefur tekið við starfi sviðsstjóra viðskiptafræðisviðs á Bifröst.

Sigurbjörn er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands með Cand. Oecon gráðu frá árinu 1998.

Hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri MP Sjóða hf., hjá Eimskipafélagi Íslands, síðar Burðarás og Straumi-Burðarási. Hann hefur jafnframt verið stundakennari við Háskólann á Bifröst og Háskóla Íslands undanfarin ár.