Ástralska ofurfyrirsætan Miranda Kerr skipaði heiðurssess á undirfatasýningu bandaríska nærfatarisans Victoria´s Secret á dögunum. Þar gekk hún á pöllunum og sýndi brjóstahaldara með vængjum sem kostar litlar 2,5 milljónir dollara eða sem samsvarar 300 milljónum íslenskra króna. Haldarinn er hlaðinn skartgripum og vegur um 15 kíló.

Kerr er 28 ára gömul og eignaðist sitt fyrsta barn snemma á árinu. Hún tvínónaði ekki við að kom aftur fram en hún hefur verið í svokölluðum englahópi nærfatarisans í nokkur misseri.  Sjálf vegur Kerr ekki nema rúm 50 kíló svo haldarinn er tæpur þriðjungur af líkamsþyngd hennar.

Í englahópi Victoria´a Secret eru margar af hæstlaunuðustu fyrirsætum heims. Kerr var á síðasta ári  níunda hæstlaunaðsta fyrirsætan með yfir 500 milljónir króna í árstekjur.

Victoria Secret
Victoria Secret