Launavísitala í september 2008 er 352,2 stig og hækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði.

Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 9,0%.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar í morgun.

Þar er tekið fram að í hækkun vísitölunnar gætir áhrifa miðlunartillögu ríkissáttasemjara í kjaradeilu Ljósmæðrafélags Íslands og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.

Samkvæmt miðlunartillögunni sem samþykkt var þann 19. september sl. hækkuðu laun félagsmanna um 22,6% að meðaltali, þar af 5% í tengslum við framkvæmd stofnanasamninga. Hækkunin sem tók gildi þann 1. ágúst sl. kom til framkvæmda í september.

Þá er þessi einnig getið að samkvæmt ákvörðun Kjararáðs í lok ágúst, hækkuðu mánaðarlaun þeirra sem heyra undir ráðið, annarra en skrifstofustjóra í Stjórnarráði Íslands um 20.300 krónur frá 1. maí 2008.

Þá hækkuðu einingar sem greiddar eru vegna fastrar yfirvinnu um 10,8%. Ákvörðun Kjararáðs kom til framkvæmda í september og gætir áhrifa hennar því í hækkun vísitölunnar nú.

Stéttarfélag lögfræðinga og fjármálaráðherra gerðu með sér samkomulag þann 11. ágúst 2008, um sérstakt 6,7 milljón króna framlag til stofnanasamninga sem ætlað er til eflingar grunnlauna almennra lögfræðinga. Í hækkun vísitölunnar koma fram áhrif af framkvæmd samkomulagsins, segir á vef Hagstofu.

Einnig kemur fram að í vísitölunni gætir einnig áhrifa yfirlýsingar menntamálaráðherra vegna nýrra laga um framhaldsskóla frá 18. júní 2008 sem lögð var fram í tengslum við samkomulag um breytingar og framlengingu kjarasamnings Kennarasambands Íslands og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs frá 16. júní. Samkvæmt yfirlýsingunni hækkar heildarlaunagrunnur í framhaldsskólum um 4%.