Stofnfundur opinbers hlutafélags um þjónustu og uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli var haldinn í gær. Félagið tekur yfir rekstur Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar frá og með 1. janúar 2009. Félagið hlaut nafnið Keflavíkurflugvöllur ohf.

Í fréttatilkynningu frá Samgönguráðuneytinu segir að félagið sé stofnað samkvæmt heimild í lögum sem samþykkt voru á Alþingi 30. maí. Samgönguráðherra fer með hlut ríkisins í félaginu og framkvæmd laganna.

Á stofnfundinum voru samþykktir fyrir félagið samþykktar og stofngerð undirrituð. Þá skipaði samgönguráðherra stjórn félagsins sem starfa skal fram að fyrsta aðalfundi þess.

Fimm manna aðalstjórn skipa: Jón Gunnarsson, Rannveig Guðmundsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Ellert Eiríksson og Pétur J. Eiríksson. Varamenn eru: Eysteinn Eyjólfsson, Guðlaug Finnsdóttir, Jón Norðfjörð, Björk Guðjónsdóttir og Magnea Guðmundsdóttir

Félagið skal hefja rekstur 1. janúar 2009 og verður hlutverk stjórnar að undirbúa reksturinn. Fram að því munu Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar og Flugstöð Leifs Eiríkssonar starfa áfram eins og verið hefur þar til lög um þá aðila falla úr gildi um næstu áramót.

Nýja félagið tekur við rekstri, viðhaldi og uppbyggingu Keflavíkurflugvallar sem borgaralegs flugvallar auk hagnýtingar flugvallarsvæðisins í þágu öryggis- og varnartengdrar starfsemi svo og rekstri, viðhaldi og uppbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Félaginu er heimilt að standa að stofnun annarra félaga og fyrirtækja og gerast eignaraðili að öðrum félögum og fyrirtækjum. Þannig er félaginu heimilt að taka þátt í félagi sem ætlað væri að annast atvinnuuppbyggingu á nærsvæði flugvallarins.