Ný stjórn hefur verið kosin fyrir P. Samúelsson hf. í ljósi breytts eignarhalds. Hin nýkjörna stjórn hefur skipt með sér verkum og er hún þannig skipuð: Formaður er Magnús Kristinsson framkvæmdastjóri og meðstjórnendur eru Þorsteinn Pálsson lögfræðingur og fyrrverandi sendiherra og ráðherra og Þórunn Pálsdóttir verkfræðingur og fjármálastjóri Ístaks.

Varamaður er Lóa Skarphéðinsdóttir kennari og eiginkona Magnúsar.

P. Samúelsson hf. er stærsta bílaumboð á Íslandi og er m.a. umboðsaðili fyrir Toyota og Lexus.