Pálmi Guðmundsson, fyrrverandi dagskrárstjóri Stöðvar 2, hefur verið ráðinn dagskrárstjóri Skjás eins. Þetta herma heimildir Viðskiptablaðsins. Hilmar Björnsson var áður dagskrárstjóri Skjás Eins.

Pálmi var dagskrárstjóri Stöðvar 2 um árabil, en lét af því starfi í sumar þegar Freyr Einarsson var ráðinn í starfið. Pálmi vildi ekkert láta hafa eftir sér um málið þegar VB hafði samband við hann í liðinni viku.