Líkamsræktarstöðin Planet Fitness hefur skipað Colleen Keating sem forstjóra fyrirtækisins. Colleen mun hefja störf í júní og tekur við af Crag Benson sem hefur gegnt stöðunni tímabundið.

Ráðning Keating kemur eftir umfangsmikla leit af hálfu fyrirtækisins en samkvæmt WSJ er hún með yfir þriggja áratuga reynslu af rekstri slíkra fyrirtækja. Hún kemur til Planet Fitness frá húsaleigufyrirtækinu FirstKey Homes, þar sem hún hefur starfað síðan 2020.

Hún hefur einnig gegnt ýmsum hlutverkum til að auka umfang InterContinental Hotels Group.

Greint var frá því í febrúar að Tom Fitzgerald myndi láta af störfum sem fjármálastjóri Planet Fitness en sú tilkynning kom stuttu eftir að fyrrum forstjóri, Chris Rondeu, sagði einnig af sér.

Fitzgerald var talinn hafa gegnt lykilhlutverki við að hjálpa fyrirtækinu að komast í gegnum Covid-19 heimsfaraldurinn.

Í september var svo greint frá því að Chris hafi í raun verið sagt upp vegna ágreinings innan stjórnarinnar frá því í september á síðasta ári. Ákvörðun Planet Fitness um að segja upp 9% af starfsfólki sínu var einnig talin tengjast þessum ágreiningi.