Þorkell Helgason, orkumálastjóri hefur af persónulegum ástæðum óskað eftir leyfi frá starfi sínu um tveggja mánaða skeið og hefur iðnaðar- og viðskiptaráðherra orðið við þeirri ósk. Ráðherra hefur í dag sett Ragnheiði Ingu Þórarinsdóttur í embætti orkumálastjóra umrætt tímabil.

Ragnheiður hefur doktorsgráðu í verkfræði frá Danska Tæknisháskólanum og MBA frá Háskóla Íslands. Hún hefur áður starfað sem deildarstjóri hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins og sérfræðingur hjá Iðntæknistofnun Íslands. Ragnheiður hefur undanfarið gegnt stöðu deildarstjóra orkudeildar á orkumálasviði stofnunarinnar.