Ekkert ráðningarstopp er hjá Viðskiptaráði en þangað hefur nú verið ráðinn hópur fólks.

Þar má nefna Björn Þór Arnarson hagfræðing, Þórdísi Bjarnadóttur lögfræðing og Ragnar Þorvarðarson sem kemur inn í hlutastarf en hann er viðskiptafræðingur.

Vangaveltur hafa verið um að Finnur Oddsson sé að hugsa sér til hreyfings en það mun ekki vera rétt.

Á síðasta aðalfundi varð mikil uppstokkun á stjórn VÍ og er gert ráð fyrir nokkrum breytingum nú líka.