Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,73% í dag og endaði í 1899 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 0,99% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Sjóvá, eða um 2,44% í viðskiptum sem hljóða upp á 152 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 12,6 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa N1, eða um 0,92% í 359 milljarðs króna viðskiptum. Verð á hvert bréf N1 er þá 65,6 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 1,56% í 755 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Icelandair er þá 37,75 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa Haga í dag, eða um 1,21% í viðskiptum sem hljóða upp á 260 milljónir króna. Verð á hvert bréf er þá 48,9 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 2,5 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 12,2 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,7% í dag í 2,5 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,4% í dag í 10,3 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,6% í 2,1 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 8,1 milljarða króna viðskiptum.