Í ljósi efnahagsástandsins hefur ríkisstjórn Íslands ákveðið að beina þeim tilmælum til Fjármálaeftirlitsins, f. h. skilanefndar Glitnis hf. og Kaupþings hf., og til stjórna Nýja Landsbankans hf. og Nýja Glitnis hf., að frystar verði afborganir skuldara á myntkörfulánum, sérstaklega vegna húsnæðislána, þar til ró kemst á gjaldeyrismarkaðinn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu.

Þá er þeim tilmælum einnig beint til sömu aðila að fólki í greiðsluerfiðleikum verði boðin sömu úrræði og til staðar eru hjá Íbúðalánasjóði vegna greiðsluerfiðleika.

Auk þess er óskum beint til annarra fjármálafyrirtækja að veita sömu fyrirgreiðslu.

Þá er tekið fram í tilkynningunni að framangreind tilmæli og óskir hafa ekki áhrif á heimild til handa Íbúðalánasjóði til að taka yfir húsnæðislán sem veitt hefur verið af öðrum fjármálafyrirtækjum og gilda á meðan unnið er að yfirfærslu húsnæðislána til Íbúðalánasjóðs.