Rósa Guðbjartsdóttir hefur beðist lausnar úr stjórn Íbúðalánasjóðs af persónulegum ástæðum.

Í tilkynningu Íbúðalánasjóðs til Kauphallar segir að Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, muni skipa nýjan aðila í stjórn sjóðsins í stað Rósu eins fljótt og unnt er.

Einungis hálfur mánuður er liðinn frá því að Rósa var skipuð í stjórn sjóðsins.