Stórsýningin Verk og vit verður haldin í sjötta sinn dagana 18.-21. apríl 2024 í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal. Á sýningunni kynna fyrirtæki og stofnanir í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum vörur sínar og þjónustu.

Sýningin er opin fagaðilum alla sýningardagana, en almenningi gefst einnig kostur á að heimsækja hana helgina 20.-21. apríl.

„Mikill áhugi hefur jafnan verið á sýningunni, bæði meðal fagaðila og almennings, og hefur gestafjöldi verið um 25.000 síðustu ár en þetta er í sjötta sinn sem sýningin er haldin. Þannig hefur Verk og vit fest sig í sessi sem lykilviðburður og eins konar uppskeruhátíð í byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð á Íslandi. Rúmlega 100 sýnendur taka þátt í ár, sem er svipaður fjöldi og á síðustu sýningum,“ segir Áslaug Pálsdóttir, framkvæmdarstjóri AP almannatengsla.

Samhliða sýningunni verður einnig haldin ráðstefna og aðrir viðburðir. Meðal sýnenda verða byggingaverktakar, verkfræðistofur, tækjaleigur, hugbúnaðarfyrirtæki, framleiðendur, menntastofnanir og ráðgjafafyrirtæki og er mikill hugur í þeim að gera sýninguna sem glæsilegasta.

„Með Verk og vit höfum við ekki eingöngu verið að skapa tækifæri fyrir íslenska markaðinn til að kynna vörur sínar og þjónustu heldur einnig unnið að því að skapa tækifæri fyrir erlenda aðila til að taka þátt í sýningunni sem sjálfstæðir sýnendur eða undir formerkjum íslenskra félaga,“ segir Áslaug enn fremur.

AP almannatengsl er framkvæmdaraðili sýningarinnar en samstarfsaðilar eru mennta- og barnamálaráðuneytið, innviðaráðuneytið, Samtök iðnaðarins, Byko og Landsbankinn.