John Coleman, forstjóri bresku stórverslunarkeðjunnar House of Fraser, hefur átt viðræður við aðra hugsanlega kaupendur en Baug, segir í frétt breska helgarblaðsins Sunday Express.

Baugur hefur gert óformlegt kauptilboð í House of Fraser að virði 351 milljón punda, sem samsvarar um 48 milljörðum íslenskra króna, eða 148 pens á hlut.

Í frétt Sunday Express segir að fjárfestingarbankinn Goldman Sachs sé tilbúinn til að fjármagna kauptilboð frá ónefndum aðila að virði 160 pens á hlut. Talið er að upplýst verði um kauptilboðið í næstu viku.

Baugur vinnur nú að áreiðanleikakönnun á House of Fraser og talið er að henni verði lokið um miðjan næsta mánuð.