Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, skildi Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra þannig, í samtali sem þeir áttu á þriðjudag, að íslensk stjórnvöld hygðust ekki bæta breskum sparifjáreigendum, sem áttu innistæður á reikningum Icesave í Bretlandi, tap sitt.

Þetta kemur fram á mbl.is og byggt heimildum sem Morgunblaðið hefur úr breska fjármálaráðuneytinu.

Eins og kunnugt er orðið var Darling ómyrkur í máli um íslensk stjórnvöld í samtali við breska fjölmiðla í gær þegar hann sagði að Íslendingar myndu ekki ábyrgjast innistæður viðskiptavina íslensku bankanna í Bretlandi.

Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins var það á grundvelli samtalsins við Árna sem breski ráðherrann tjáði sig um þessi mál í gærmorgun og ákvað að frysta eignir Landsbankans í Bretlandi, en ekki vegna þess sem Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, sagði í samtali við Kastljós Ríkissjónvarpsins í fyrrakvöld.

Sjá frétt mbl.is