Talsmenn skandinavíska flugfélagsins SAS neita því að þeir hafi nokkurn áhuga á að fjárfesta í Icelandair. Tilefni þess að SAS neitar þessu eru skrif í fréttabréfinu Travel People þar sem málinu var velt upp.

Í frétt á fréttavef Dagens Industri í Svíþjóð kemur fram að talsmaður SAS, Bertil Ternet, hafnar þessu með öllu.

Þar kemur fram að tilefni vangaveltnanna er sá vilji FL Group að selja frá sér Icelandair. Þar kemur einnig fram að samkvæmt heimildum Travel People þá hyggist FL Group aðeins halda eftir 15% af bréfum sínum í Icelandair við skráningu.