Seðlabankinn hefur ákveðið að hefja á ný reglubundin gjaldeyriskaup á millibankamarkaði með gjaldeyri með það fyrir augum að draga úr sveiflum á gengi krónunnar. Keyptar verður þrjár milljónir evra á gjaldeyrismarkaði í hverri viku til loka september. Umfangið verður endurmetið í haust eða fyrr ef aðstæður breytast umtalsvert, að því er fram kemur í tilkynningu frá Seðlabankanum.

Fram kemur í tilkynningunni að ákvörðunin var tekin með hliðsjón af umtalsverðu gjaldeyrisinnstreymi undanfarna mánuði og horfum um áframhaldandi innflæði næstu mánuði, hækkun raungengis krónunnar undanfarin ár og verðbólguþróun.

Hafa keypt gjaldeyri fyrir 45 milljarða

Seðlabankinn rifjar upp að hann hafi keypt reglubundið gjaldeyri á tímabilinu 31. ágúst 2010 til ársloka 2012. Þá keypti bankinn fyrst 500 þúsund evrur af hverjum viðskiptavaka vikulega og síðar eina milljón evra af hverjum viðskiptavaka í hverri viku. Samtals keypti bankinn með þessum hætti erlendan gjaldeyri að jafnvirði 33,3 ma.kr.  eða 216 milljónir evra. Bankinn hætti reglubundnum gjaldeyriskaupum í árslok 2012. Frá því um miðjan maí 2013 hefur Seðlabankinn haft virkari afskipti af gjaldeyrismarkaðinum en áður og beitt inngripum í því skyni að draga úr sveiflum í gengi krónunnar.

Á tímabilinu frá 15. maí 2013 hefur Seðlabankinn keypt 288 milljónir evra, að jafnvirði 45,1 ma.kr., og selt 21  milljón evra, að jafnvirði 3,4 ma.kr. Hrein gjaldeyriskaup bankans námu 41,7 ma.kr. á tímabilinu. Á yfirstandandi ári nema hrein gjaldeyriskaup Seðlabankans 222 milljónum evra eða sem samsvarar 34,5 ma.kr.  Seðlabankinn hefur því að jafnaði keypt rúmlega 9 milljónir  evra á viku hverri það sem af er árinu.