Stjórn Neytendasamtakanna hefur tilkynnt um það að ákveðið hefur verið að segja upp öllu starfsfólki samtakanna. Þetta kemur fram í stuttri fréttatilkynningu á vefsíðu Neytendasamtakanna .

Þar kemur fram að þessi aðgerð sé liður í endurskipulagningu og endurfjármögnun samtakanna. „Vonast er til að starfsfólk verði endurráðið áður en uppsagnarfrestur rennur út,“ er jafnframt tekið fram þar.