Airport Associates á Keflavíkurflugvelli hafa sagt upp þjónustusamningi sínum við Iceland Express um flugafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli.

Frá þessu er greint á vef Víkurfrétta en Sigþór Kristinn Skúlason, framkvæmdastjóri Airport Associates, staðfesti þetta í samtali við Víkurfréttir.

Sigþór Kristinn segir að fyrirtækin hafi ekki náð samningum sín á milli og því hafi mál þróast á þennan hátt. Uppsögnin tekur gildi um mánaðamótin maí/júní nk.

Þá kemur jafnframt fram að ekki verða ráðnir sumarstarfsmenn til fyrirtækisins eins og til stóð. Fyrirtækið auglýsti á dögunum eftir sumarfólki en getur við breyttar forsendur ekki ráðið það fólk til vinnu.

Sjá nánar á vef Víkurfrétta.