Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu um að Húsasmiðjan hafi brotið gegn ákvæðum laga með fullyrðingunni „Landsins mesta úrval af pallaefni“. Áfrýjunarnefndin staðfesti einnig 500.000 kr. stjórnvaldssekt sem Neytendastofa lagði á Húsasmiðjuna fyrir brotið, að því er kemur fram á vefsíðu Neytendastofu.

Í úrskurði áfrýjunarnefndar er m.a. fjallað um skyldu auglýsanda til að sanna fullyrðingar sínar og að fallist sé á þá niðurstöðu Neytendastofu að listi yfir pallaefni Húsasmiðjunnar og tilvísun til þess að gerður hafi verið samanburður við vörur keppinauta, teljist ekki fullnægjandi til sönnunar á fullyrðingunni.