Norðurlandaþjóðirnar verða með loftrýmisgæslu hér á landi næstu vikur. Í gær lenti flugsveit Norðmanna á Keflavíkurflugvelli. Flugsveitin samanstendur af sex F16 þotum og fylgja henni um 110 liðsmenn. Verkefnið er unnið samkvæmt loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland, segir á vef Landhelgisgæslunnar .

Flugsveitir frá Finnlandi og Svíþjóð eru væntanlegar til landsins síðar í vikunni og verða hér á landi til 21. febrúar og æfa Norðurlandasamstarfið samhliða loftrýmisgæslunni með Norðmönnum og Íslendingum. Það verkefni hefur vinnuheitið: „Iceland Air Meet 2014 (IAM2014)“.   Gert er ráð fyrir að samtals verði um að ræða 300 liðsmenn frá þjóðunum og um 20 flugvélar.  Finnar munu einnig leggja til tvær björgunarþyrlur.  Til viðbótar framangreindu taka þátt í verkefninu eldsneytisbirgðaflugvélar frá Bandaríska og Hollenska flughernum ásamt ratsjárflugvél Atlantshafsbandalagsins.

Svona verður búnaður Norðurlandaþjóðanna í Keflavík:
•    Noregur verður með 6 F16 orrustuþotur og um 110 liðsmenn.
•    Finnland verður með 5 F18 orrustuþotur, 2 NH-90 SAR þyrlur og 60 liðsmenn.
•    Svíþjóð verður með 7 JAS-39 orrustuþotur, C-130 eldsneytisflugvél og 110 liðsmenn.
•    Holland verður með 1 KC10 eldsneytisbirgðaflugvél.
•    Bandaríkin verður með 1 KC135 eldsneytisbirgðaflugvél.
•    NATO verður með 1 ratsjárflugvél sem verður staðsett í Orland, Noregi.

Framkvæmd og undurbúningur verður með saman fyrirkomulagi og áður.