Nær 27 prósent segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn í alþingiskosningum samkvæmt nýrri Gallup-könnun. Það er aukning um fimm prósentustig frá síðustu viku. Framsókn fengi tæp sjö prósent sem er minnsta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með síðan í febrúar 2008. Greint var frá þessu í fréttum Ríkisútvarpsins .

Píratar fengju samkvæmt þessari könnun 29,3 prósent sem er þremur prósentustigum minna en fyrir viku. Rétt tæp 20 prósent myndu kjósa Vinstri græn sem er þremur prósentustigum meira en fyrir viku og þarf að leita aftur til september 2010 til að finna meira fylgi við flokkinn. 9 prósent segjast myndu kjósa Samfylkinguna, 5 prósent Bjarta framtíð, nær 3 prósent Viðreisn og tæpt eitt prósent aðra flokka eða framboð.

Rúmlega 34 prósent segjast styðja ríkisstjórnina. Það er aukning um fjögur prósentustig frá síðustu könnun sem gerð var áður en formlega var skipt um ríkisstjórn. Sú aukning er þó ekki tölfræðilega marktæk, að því er segir í fréttinni.