BB.is greinir frá því að sjö manns hafi sótt um stöðu upplýsingafulltrúa Ísafjarðarbæjar. Umsækjendurnir eru:

Elísabet Samúelsdóttir Ísafirði,

Hálfdán Bjarki Hálfdánarson Ísafirði,

Hlynur Kristjánsson Ísafirði,

Kristján Freyr Halldórsson Reykjavík,

Margrét Þóra Óladóttir Ísafirði,

Sigríður Dögg Auðunsdóttir Reykjavík og

Thelma Hjaltadóttir Ísafirði.

Fram kemur í fréttinni að í starfinu felist innri og ytri upplýsingamiðlun fyrir sveitarfélagið, stefnumörkun fyrir nýtt þjónustuver og stefnumótun varðandi markaðssetningu Ísafjarðarbæjar utan Vestfjarða.