Skiptum er lokið á félaginu X1050 ehf., en það hét áður Laun­drom­at Reykja­vík ehf. Tilkynning um lok skipta birtist í Lögbirtingarblaðinu í dag.

Lýstar kröfur námu samtals 94 milljónum króna. Engar eignir fundust í búinu  og var skiptum því lokið án þess að greiðsla fengist upp í kröfur.

Laun­drom­at opnaði fyrsta staðinn á íslandi í mars 2011 en fyrir voru þrír staðir í Danmörku. Félagið var úrskurðað gjaldþrota fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í febrúar 2014 og skiptum lauk þann 25. febrúar.