Skráð atvinnuleysi hækkaði úr 3,8% í 3,9% á milli janúar og febrúar hefur ekki verið hærra frá því í maí 2022. Vinnumálastofnun spáir því í nýrri mánaðarskýrslu að atvinnuleysi breytist lítið í mars og verði á bilinu 3,7% til 3,9%.

Að meðaltali voru 7.589 atvinnulausir í febrúar. Að meðaltali fjölgaði atvinnulausum um 249 frá janúar.

Atvinnuleysi var mest á Suðurnesjum í febrúar eða 6,9% og hækkaði úr 6,7% frá janúar. Minnst var atvinnuleysi á Norðurlandi vestra eða 1,7% og á Austurlandi 2,8%.

Mynd tekin úr skýrslu Vinnumálastofnunar.