Varalitur
Varalitur
Neytendastofa hefur sektað tvær hársnyrtistofur og ein snyrtistofu á höfuðborgarsvæðinu vegna ófullnægjandi verðmerkinga. Þetta var gert í framhaldi af könnun Neytendastofu um ástand verðmerkinga hjá hársnyrtistofum og snyrtistofum. Margar af þeim stofum sem gerðar voru athugasemdir við bættu merkingar sínar en þrjár stofur fóru ekki að tilmælum Neytendastofu um verðmerkingar. Neytendastofa lagði á þær stjórnvaldssektir, hverja að fjárhæð 50.000 krónur.

Hársnyrtistofum og snyrtistofum ber skylda til að hafa sýnilegan verðlista yfir a.m.k. algengustu þjónustuþætti og til að verðmerkja allar söluvörur sínar.