Hagfræðideild Landsbankans spáir 0,25 prósenta lækkun stýrivaxta Seðlabanka Íslands á næsta vaxtaákvörðunardegi peningastefnunefndar sem er næsta miðvikudag. Hagfræðideildin telur að forsendur séu fyrir að minnsta kosti þeirri lækkun stýrivaxta.

Helstu rök fyrir lækkun að mati deildarinnar er stöðugt gengi krónunnar undanfarnar vikur, undirliggjandi verðbólga er lág og þá benda fyrstu tölur Hagstofunnar um hagvöxt árið 2010 til þess að ákveðnum stöðugleika sé náð í efnahagslífinu. Engin haldbær merki eru þó um að hagvöxtur sé hafinn að nokkru marki, segir í spánni. „Mikill slaki er nú í hagkerfinu sem endurspeglast fyrst og fremst í miklu atvinnuleysi, lítilli fjárfestingu og lágri verðbólgu.

Lykillinn að áþreifanlegum efnahagsbata og aukinni atvinnu liggur í vexti fjárfestingar. Nýbirt áætlun Seðlabankans um afnám gjaldeyrishafta gerir ráð fyrir því að fjárfesting aflandskróna í íslensku atvinnulífi verði fyrst heimiluð þegar aðgengi ríkissjóðs að erlendum fjármálamörkuðum sé tryggt. Líklegt er að einhver töf verði á því í ljósi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave samningana.

Vextir Seðlabankans eru nú í sögulegu lágmarki og því er líklegt að frekari skref til lækkunar verði minni en í upphafi vaxtalækkunarferlisins. Hagfræðideild Landsbankans metur að við núverandi aðstæður sé svigrúm til vaxtalækkunar allt að 0,75% en í ljósi varfærins tóns í yfirlýsingum peningastefnunefndar fyrr á árinu spáum við 0,25% lækkun að þessu sinni.“