Til stendur að sameina írska ávaxtaframleiðandann Fyffes og bandaríska ávaxtaframleiðandinn Chiquita. Markaðsverðmæti sameinaðs fyrirtækis verður einn milljarður dala, eða um 112 milljarðar íslenskra króna.

Nýja fyrirtækið mun heita ChiquitaFyffes og það mun selja um 160 milljónir kassa af bönunum á hverjum ári. Það er meira en nokkuð annað fyrirtæki selur.

Nýja fyrirtækið verður skráð í New York. Tilgangurinn með skráningunni verður að draga úr kostnaði og auka stækka það svæði sem fyrirtækin tvö hafa hingað til starfað á.

BBC greindi frá.