Að sögn Kristofers Oliverssonar, framkvæmdastjóra Miðbæjarhótela, er stefnt að opnun á stækkun Hótel Plaza nú í maímánuði.

Hann sagði að bókunarstaða væri ágæt og hann því nokkuð bjartsýn fyrir sumarið.

Hótel Plaza muni opna á milli núverandi hótels í Aðalstræti 4 yfir í húsnæðið í Aðalstræti 6 og 8. Með stækkuninni mun herbergjum fjölga í Hótel Plaza um sjötíu og fimm og verða samtals 180 gistiherbergi í hjarta miðborgarinnar og verður þar með eitt af stærri hótelum bæjarins.