Pítsustaðurinn Devito's Pizza hagnaður um 4,6 milljónir króna á síðasta ári. Er það litlu minna en ári fyrr þegar hagnaðurinn nam 5,8 milljónum króna.

Rekstrarhagnaður Devito's nam 12,3 milljónum króna á árinu og dróst saman um 2,3 milljónir króna á milli ára. Afskriftir námu hins vegar 4,9 milljónum króna.

Eignir félagsins í lok ársins námu 74,4 milljónum króna. Fastafjármunir námu 19,2 milljónum króna en þar af er fasteign félagsins metin á 5,8 milljónir króna og bifreiðar á 12,2 milljónir króna. Veltufjármunir námu 55,1 milljón króna. Þá voru skuldir fyrirtækisins 24 milljónir króna í árslok og nam eigið fé félagsins því 50,3 milljónum króna.

Ali Louzir er eini eigandi fyrirtækisins.