Tanni auglýsingavörur á 15 ára afmæli í dag og að því tilefni mun fyrirtækið gerast styrktaraðili Barnaspítala Hringsins næstu ár, að því er fram kemur í tilkynningu.

Tanni sérhæfir sig í því að hafa heildarlausnir á fyrirtækjasviði í merktum auglýsingavörum og léttum vinnufatnaði eins og fatnaði fyrir verslanir, sjúkrastofnanir og mötuneyti.